Óvissustig vegna hættu á snjóflóðum er enn í gildi á öllum Vestfjörðum, ekki einvörðungu á þeim sunnanverðum eins og í gærdag, en þá voru hús rýmd á Patreksfirði vegna mikillar snjósöfnunar í fjöllum. Þar hefur ekki snjóað svona mikið síðan árið 2000.
Sex hús voru rýmd við Urðargötu á Patreksfirði í gærkvöld. Húsin standa á rýmingarreit 4. Átján voru í húsunum - fimm gistu í nótt á Fosshóteli - hinir þrettán fengu inni hjá vinum og ættingum . Staðan verður svo endurmetin þegar fer að birta.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, sagði í Morgunútvarpinu á Rás 2 að hún hefði heyrt í snjóflóðaeftirlitsmanni í morgun. Hann hefði ekki séð til fjalls þannig að hann gæti ekki metið stöðuna. „En hann sagði að það hefði ekki snjóað svona mikið hér síðan árið 2000 þannig að það er umtalsverður snjór hérna.“
Færð á vegum landsins er í samræmi við ofankomuna og hvassviðrið: Þjóðvegur 1 frá Kirkjubæjarklaustri og að Hvalsnesi er lokaður, en einnig eru flestar leiðir lokaðar á Vestfjörðum og meira og minn allar leiðir fyrir austan Akureyrar.
Í athugasemd veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að austanstormur eða -rok og talsverð eða mikil úrkoma verði á norðan- og austanverðu landinu framan af morgni, en svo gangi hann niður að mestu, þó ekki norðvestanlands fyrr en í kvöld.