Snjóflóð féll og vegum lokað

Snjóflóð féll í Ólafsfjarðarmúla á ellefta tímanum í morgun og var veginum lokað strax. Vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir.

Ríkisútvarpið segir frá þessu.

Rúv greinir einnig frá því að fjallvegir á Austurlandi séu ófærir en stormur gengur yfir Norðausturland í dag. Í Oddsskarði voru 24 metrar á sekúndu í morgun og öllu flugi til Egilsstaða hefur verið aflýst.

Veginum um Möðrudalsöræfi milli Egilsstaða og Mývatns hefur einnig verið lokað og Vopnafjarðarheiði sömuleiðis.