Það er talsverður éljagangur í veðurkortunum fyrstu viku nýs árs, en gert er ráð fyrir nokkuð hvössum austan- og norðanáttum á næstu dögum, jafnvel að það slái í storm á fimmtudag.
Úrkomulítið verður vestantil í dag, en annars dálítil slydda eða snjókoma með köflum. Það hlýnar í veðri og hiti verður kringum frostmark síðdegis.
Á morgun verður all hvasst upp úr hádegi, hvassast vestantil, en rigning eða slydda austantil, úrkomulítið vestanlands, en annars dálítil slydda eða snjókoma með köflum. Dálítil él láta á sér kræla um landið austanvert og kólnar heldur.
Hiti næstu daga þar á eftir verður um og undir frostmarki, en oftast er nokkur vindur í kortunum, ýmist með slyddu og rigningu, nema á fimmtudag þegar vind herðir mjög með slyddu eða snjókoma sunnan- og austantil og heldur kólnandi veðri.
Á föstudag og laugardag má svo búast við norðaustlægri átt og dálítlum éljum, en yfirleitt verður léttskýjað sunnan- og vestanlands. Harðnandi frost.