Skúrinn: snigill númer 1 heimsóttur

Í bíladelluþættinum Kíkt í skúrinn á Hringbraut í kvöld er farið í viðhafnarheimsókn til Hilmars Lútherssonar, snigils númer 1 í félagaskrá Bifhjólasamtaka lýðveldisins, en hann er einn af stofnendum þeirra.  

Hilmar man tímana tvenna í mótorsportinu eins og vel kemur fram í samtali Jóa Bachmann við karlinn, en hann hefur verið öll einkenni dellukarlsins frá því um miðja síðustu öld - og hafa á annað hundrað hjól farið í gegnum hendur þessa snillings em mikil virðing er borin fyrir í hjólabransanum. Hann rifjar upp blómatíma skellinaðranna og svo síðari tíma breytingar á hjólamenningunni í þættinum - og fer á köfkum mikinn.

Í þættinum verður einnig fylgst með því þegar Mercedes Benz klúbburinn bauð á bæjarferð á eðalfákum sínum um Reykjavík, en þar var vitaskuld mikið um dýrðir þar.

Og þá eru ónefndar glæsilegar stemningsmyndir af keilumóti þáttarins Kíkt í skúrinn þar sem fjölmargir bílaklúbbar skráðu sig til leiks. Þetta var í fyrsta sinn sem bílaklúbbar koma saman hittast á einum stað, spjalla saman og fara í keppni af þessu tagi. Krúser klúbburinn vann þetta fyrsta mót og eru réttnefndir bikarmeistarar bílakúbba 2015.

Forkólfar klúbbsins skoruðu á þáttastjórnandann að halda annað mót fljótlega og er stefnt að næsta móti í byrjun nýs árs.

Kíkt í skúrinn er frumsýndur klukkan 20:30 í kvöld.