Sniðgangan er galið frumhlaup!

Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir réttast fyrir Reykjavíkurborg að hætta við frekari tillögur um sniðgöngu á vörur frá Ísrael. Málið sé galið og frumhlaup hjá borgarstjórnarmeirihlutanum. Eina leiðin til að koma í veg fyrir skaða sé að setja punkt aftan við málið.
 
Þetta keemur fram í samtali hans við fréttavef RÚV í dag, en óhætt er að segja að samþykkt borgarstjórnar um að kaupa ekki vörur frá Ísrael á meðan á landtöku ísraelska ríkisins á landi Palestínu stendur, hafi dregið dilk á eftir sér. Málið hefur vakið athygli og viðbrögð víða um heim. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagðist í gær ætla að draga tillöguna til baka, hún hafi verið óskýr, sniðgangan hafi átt að eiga við vörur frá hernumdu svæðunum, ekki Ísrael í heild. Næstu skref verið vandlega undirbúin. Forsætisráðherra sagðist í fréttum Sjónvarps í gær vita um stór verkefni sem væru í hættu vegna málsins, þótt hann greindi ekki frá hver þau væru, og Jón Ólafsson stjórnarformaður Icelandic Water Holdings segir á mbl.is að varla hafi liðið nema nokkir klukkutímar frá því málið kom upp þar til fyrstu fyrirtækin hættu að selja vörur hans. Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda telur réttast fyrir borgina að hætta alfarið við málið.

\"Það er enn sem komið er erfitt að segja hvaða áhrif tillagan óbreytt yfirleitt hefði haft því hún var gersamlega óútfærð og vanhugsuð. Einfaldast er bara að draga þessa tillögu til baka og setja punkt þar og koma sinni óánægju með þróun mála fyrir botni Miðjarðarhafs á framfæri með öðrum hætti. Ég sé ekki alveg fyrir mér hvernig stjórnsýsla Reykjavíkurborgar ætlar að framfylgja þessari breyttu tillögu eins og hefur verið talað um hana. Hvernig ætla menn að finna út hvað er framleitt á hernumdu svæðunum og hvernig ætla menn að koma í veg fyrir að það sé keypt af stofnunum Reykjavíkurborgar og svo framvegis? Ég hef ekki heyrt neina útfærslu á því og mér þetta allt saman svo galið að það sé bara best að hætta við þetta.“

Ólafur segir að skaðinn hvað varðar orðspor Reykjavíkur og Íslands í alþjóðlegri umræðu sé þegar skeður, ný og breytt tillaga lagi ekkert: \"Ég held bara að þetta hafi verið frumhlaup, það er nú ekkert flóknara en það,“ segir Ólafur Stephensen við fréttavef RÚV.