Sniðgangan aumkunarvert klúður!

\"Eina leiðin út úr þessu er að borgarstjórnin afnemi þessa ákvörðun með annarri samþykkt - og biðji síðan borgarbúa afsökunar á þessu aumkunarverða klúðri.\"

Þetta segir í niðurlagi nýjasta pistils Páls Magnússonar á hringbraut.is um umdeilda samþykkt meirihluta borgarstjórnar frá því í síðustu viku um að s niðganga ísraleskar vörur vegna hernáms þeirra á palestínsku landi, en borgarstjóri segir orðalag hennar vera mistök og hann muni breyta orðalagi hennar á fundi á fimmtudag. 

\"Það er erfitt að ímynda sér öllu meiri siðferðislegan tvískinnung en felst í því að hætta að kaupa vörur frá Ísrael vegna mannréttindabrota þar í landi - en þiggja samt glaður og reifur og athugasemdalaust heimboð frá Kínverskum stjórnvöldum, sem flestum öðrum fremur þverbrjóta kerfisbundið mannréttindi á hverjum degi,\" skrifar Páll í pistli sínum.

\"Þetta tvöfalda siðgæði,\" skrifar hann áfram \"er auðvitað miklu alvarlega en sá brjóstumkennanlegi klaufaskapur sem einkennir þessa ákvörðun - og er þó ærinn. Og málið versnaði enn þegar borgarstjórinn ætlaði að fara að laga það. Allt í einu byrjaði hann að halda því fram að þessi \\'sniðganga\'\' ætti bara við þau ísraelsku fyrirtæki sem starfrækt væru á hernumdu svæðunum. Þetta er einfaldlega rangt hjá borgarstjóranum. Hvorki í tillögunni né samþykktinni sjálfri er þessi greinarmunur gerður.\"

Og Páll dr í meira lagi hissa á málinu öllu saman: \"Við framkvæmd \'\'sniðgöngunnar\'\' verður auðvitað að fara eftir orðanna hljóðan í samþykktinni sjálfri en ekki einhverjum eftirátúlkunum borgarstjórans sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum