Dmitry Peskov, talsmaður rússnesku ríkisstjórnarinnar, segir að ákvörðun breskra og íslenskra ráðamanna um að sniðganga heimsmeistaramótið í knattspyrnu í sumar muni ekki hafa nein teljandi áhrif á mótið sjálft því það það sem skipti máli á HM séu ekki ráðamennirnir sem mæti heldur leikirnir milli landsliðanna.
Þetta er haft eftir honum á vef Russia Today þar sem hann segir að mjög ólíklegt sé að ákvörðun ráðamanna um að sniðganga mótið muni hafa einhver neikvæð áhrif á þá íþróttahátíð sem HM er.
Eins og kunnugtt er afréðu íslensk yfirvöld á mánudag að taka þátt í samstilltum aðgerðum vestrænna ríkja vegna efnavopnaárásarinnar í enska bænum Salisbury í byrjun mánaðarins. Árásin beindist að rússneska gagnnjósnaranum Sergei Skripal og dóttur hans, Júlíu.
Engum rússneskum stjórnarerindrekum var vísað úr landi en öllum tvíhliða fundum með rússneskum ráðamönnum og háttsettum embættismönnum var frestað um óákveðin tíma. Og það þýðir að íslenskir ráðamenn munu ekki sækja HM í Rússlandi.