Snerti allt að 87 milljónir notenda

Facebook tilkynnti í gær að Cambridge Analytica hefði komist yfir persónupplýsingar allt að 78 milljóna notenda sinna en ekki um 50 milljóna eins og áður hafði verið talið.

Mark Zuckerberg forstjóri fyrirtækisins sagði í viðtali við fréttamenn í gær að þessi nýja tala væri fengin með því að skoða heildartölu Facebook-vina þeirra notenda sem voru í úrtaki Cambridge Analytica.

„Þeir gætu vel verið færri, en við vildum leggja fram heildartöluna um leið og við kláruðum greininguna á þessu,“ sagði Zuckerberg.

Zuckerberg  hefur viðurkennt að Facebook hafi brugðist trausti notenda sinna í því að Cambridge Analytica hafi komist yfir prófílsuppýsingar þessarra milljóna notenda án vitneskju þeirra. Gert er ráð fyrir að hann sitji fyrir svörum þingnefndar á Bandaríkjaþingi um málið síðar í þessum mánuði.