Nú liggur fyrir samkvæmt Veðurstofunni að allar líkur eru á hinu versta fárviðri á morgun.
Veðurstofan hefur birt myndakort (sjá á myndinni að ofan) þar sem rauðir, gulbrúnir og bleikir litir tákna hættulegasta vindinn en í stuttu máli má búast við ofsa eða fárviðri um allt land eftir klukkan 19 á morgun.
Fárviðrið mun skella á sunnanverðu landinu um klukkan 15 á morgun, mánudag. Fjórum tímum síðar verður orðinn glórulaus bylur um allt Ísland, úrkoma fylgir storminum sem þýðir að færð verður engin. Vindur gæti í hviðum a.m.k. hæglega farið yfir 50 metra á sekúndu víða.
Um lægðina segir: „Hún dýpkar með eindæmum hratt í nótt og er þrýstingi í miðju hennar spáð 944 mb seint annað kvöld og á hún þá að vera stödd suður af Reykjanesi. Á þeirri stundu verður 1020 mb hæðarhryggur skammt N af Scoresbysundi á austurströnd Grænlands og heldur hann á móti lægðinni. Saman valda þessi tvö veðrakerfi vindstyrk af styrk ofsaveðurs eða fárviðris yfir Íslandi,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofu.
Til að setja veður morgundagsins í samhengi skal bent á að spáin bendir til að veðrið á morgun verði miklum mun verra en varð í hvellnum í vikunni.
Uppfært kl. 19:41: Almannavarnir hvetja nú fólk sunnanlands til að halda sig heima frá og með hádegi á morgun en norðanlands frá og með kl. 17 eins og horfir nú.