Snakktollur: meirihluti þings guggnar

Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur dregið til baka breytingartillögu sína við frumvarp um ýmsar forsendur fjárlaga, þess efnis að 59% tollur á innflutt kartöflusnakk verði felldur niður.

Þetta er gert vegna þrýstings frá innlendum snakkframleiðendum, en Samtök iðnaðarins hafa til dæmis mótmælt afnámi tollsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Félagi atvinnurekenda í dag, en þar á bæ hafa menn ákaft barist fyrir niðurlagningu tollsins.

Í tilkynningu segir að Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd hafi aftur á móti lagt tillöguna fram í eigin nafni, þó með þeirri breytingu að snakktollurinn verði ekki afnuminn um áramót, heldur á miðju ári 2016

\"Félag atvinnurekenda harmar að stjórnarmeirihlutinn í nefndinni skuli guggna á því að leggja til að þessi verndartollur fyrir innlenda iðnaðarframleiðslu sé afnuminn. Jafnframt hvetur félagið þingmenn til að samþykkja tillögu Sigríðar Andersen,\" segja forkólfar félagsins.

\"Verndartollar fyrir iðnað áttu að heyra sögunni til fyrir löngu,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA: \"Ofurtollur á kartöflusnakk hefur verið réttlættur með því að hann sé hluti af tollvernd fyrir landbúnaðinn. Staðreyndin er hins vegar sú að engar íslenskar kartöflur eru notaðar í framleiðslu tveggja iðnfyrirtækja, sem framleiða snakk. Þau framleiða úr innfluttu hráefni, sem ber litla sem enga tolla. Snakktollurinn er þannig verndartollur fyrir iðnað, dulbúinn sem tollvernd fyrir landbúnað.“