Svo að segja snælduvitlaust veður gengur yfir landið í dag og má heita að það vari frá morgni til kvölds og suðvestanverðu landinu, en lægðaósköpin hafa annars bitnað á flestum landsmönnum það sem af er helgi.
Flugferðum hefur verið aflýst vegna bálsins - og þá er það ef til vill dæmigert fyrir ástandið að 112, einn-einn-tveir deginum, sem er í dag, hefur verið frestað um óákveðinn tíma, en all margir atburðir tengdir honum áttu að fara fram í dag.
Snjó hefur kyngt niður á Akureyri, svo dæmi sé tekið og þurftu björgunamenn að koma tugum ökumanna til bjargar í gær sem sátu fastir með bíla sína í sköflum.
Fjöldi heiða hefur verið lokaður umferð um helgina ogg er hætt við að þjóðleiðir geti lokast án mikils fyrirvara í dag - og er því augljóst að það er ekkert ferðaveður á landinu.
Fólk er hvatt til að fylgjast vel með veðurspám og færð hjá vefjum Veðurstofu Íslands og Vegagerðarinnar - og upplýsa jafnframt erlenda ferðamenn um stöðu mála.