Snæfellsnes: ferðamaður fannst látinn

Erlendur ferðamaður fannst látinn við Löngufjörur á Snæfellsnesi seint í gær eftir víðtæka leit björgunarsveita af Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu, en lögreglan í Borgarnesi staðfsti lát mannsins á áttunda tímanum í kvöld. 

Í tilkynningu lögreglunnar á Vesturlandi í gærkvöld segir að mannlaus bílaleigubifreið hafi fundist í gær við Skógarnes á Snæfellsnesi: \"Lögreglan á Vesturlandi hóf eftirgrennslan og kom í ljós að leigutaki bifreiðarinnar hafði ekki skilað sér í flug sem hann átti bókað. Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita og hófst leit skömmu fyrir myrkur. Maðurinn, sem er erlendur ferðamaður, fannst, látinn skömmu eftir að leit hófst. Ekkert bendir til að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti,\" segir þar.

Í fyrstu var haldið að um tvo erlenda ferðamenn væri að ræða - og miðaðist leitin í fyrstu við það, en síðar kom hið rétta í ljós.