Já það er komið að því góðir hálsar.
Smella sér í eldgömlu garðhanskana, grípa gúmmítútturnar, upp með buffið og út !
Sáningar tíðin er í þann mund að hefjast. Manni hreinlega kitlar í hjartanu að geta loks farið að krjúpa yfir beðunum og fylgjast með litlu fallegu sumarblómunum sínum rísa.
Vonum bara að veðrið haldi.
Kannski er þetta ekki allveg svona einfalt, að mörgu þarf að huga og þar að leiðandi mikilvægt að vera undirbúin áður en til garðskreytinga er haldið.
Góðir hanskar eru mikilvægir og þá ber að hafa þunna og þrönga svo að þú sért með meiri tilfinningu fyrir því sem þú ert að gera – margir klikka á þessu og eru oftar en ekki búnir að rífa sig úr hönskunum við það eitt að reyna að koma sér í skóna !
Þæginlegur fatnaður, það nennir þessu enginn í þröngum gallabuxum. Fatnaður þessi má skítna út, rifna og blotna. Pössum samt að vera ekki í gegnsæum buxum, nágrannanna vegna.
Búnaður: lítil og beitt skófla, plöntuskeið (klóra) og persónulega finnst mér voða gott að hafa dúkahníf við höndina. Kannt skeri er mikilvægur til að kóróna útlitið, góð slátturvél, klippur, bæði stórar sem smáar, útvarp og hálft hvítvíns glas, með klaka.
Þá eru það auðvitað blessuð blómin sem eru farin að fást á hverju horni. Hins vegar er voða gaman að fara í stærri garðverslanir og skoða og jafnvel velja sér litapallettu. Úrvalið hefur aldrei verið meira og á hverju ári bætast við nýjar og framandi tegundir sem gaman er að hafa í bland við klassísku stjúpurnar og tóbakshornin. Okkur mömmu finnst skemmtilegast að fara í Mörkina, við tökum bara með okkur nesti og kaffi á brúsa því úrvalið er svo mikið og nær ómögulegt er að komast þaðan burt útaf úrvali og valkvíða.
Svo eru sumir sem eiga bara pall og eru ekkert að spá í þessum blómum.
Það þarf líka að hugsa um pallinn kæri Viðar, en það er önnur saga.
**Snædís**