Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í gærdag að réttur heyrnarlausra til túlkaþjónustu sé ekki háður fjárlögum hvers tíma heldur beri ríkinu að sinna þessari þjónustu í samræmi við þarfir samfélagsins.
Þar með er ljóst að Snædís Rán Hjartardóttir hefur lagt ríkið að velli, en hún höfðaði málið á hendur hins opinbera af því hún taldi ríkið ekki veita sér þá þjónustu sem hún þarf til að lifa mannsæmandi lífi. Snædís Rán er daufblind, þ.e.a.s. bæði heyrnarlauf og blind og þarf aðstoð túlks til að geta tjáð sig og tekið þátt í lífi og starfi til jafns við aðra.
Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ríkið hefði brotið á Snædísi Rán fyrir að láta hana sjálfa greiða fyrir túlkaþjónustu úr eigin vasa, alls 50 þúsund krónur og gerði dómurinn ríkinu að endurgeiða henni þá upphæð auk hálfrar milljónar í miskabætur vegna meingerðar ríkisins á hendur henni.
Guðbjörg Anna Guðbjörnsdóttir, lögmaður Snædísar Ránar kveðst í samtali við Fréttablaðið í morgun hafa verið jafn sannfærð og skjólstæðingur sinn um að málið myndi vinnast: \"Ríkið getur ekki skýlt sér á bak við fjárlögin.\"