Smíðar risastóran jöklabíl

Einn stærsti jökla­bíll sem smíð­aður hefur verið hér á landi verðI til­bú­inn til notk­unar í vor. Trukkurinn verður meðal ann­ars búinn kló­setti, ofnakerfi og útsýnis­palli og á að nýta undir jökla­ferðir upp á Eyja­fjalla­jök­ul með lúxusívafi. Bíla­smið­ur­inn Ást­valdur Ósk­ars­son sagði við RÚV í vikunni að undirvagninn sé úr amerískum slökkvibíl og dekkinn verði 78 tommu að stærð.