Smáþjóðaleikarnir í algeru uppnámi

Fari svo að starfsfólk í flugafgreiðslu semji ekki fyrir næstu mánaðamót verður ekkert af mótshaldi Smáþjóðaleikanna á íslandi í byrjun júní - og þar með færu 500 milljónir króna í súginn hjá íslenmskri íþróttahreyfingu.


Leikarnir hafa verið í undirbúningi um langa hríð en þeir eiga að fara fram í Reykjavík dagana 1. til 6. júní næstkomandi, eða eftir aðeins 10 daga. Von er á 1200 manns til landsins vegna leikanna, jafnt keppendum, fararstjórum og fréttamönnum. Heildarvelta leikanna er áætluð um 500 milljónir króna.


Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ segir við Fréttablaðið í morgun að enn hafi enginn afboðað sig á leikana en fólk ytra fylgist vel með framvindu mála á Íslandi. "Ef deilan leysist ekki fyrir 31. maí er tvísýnt um að fólk komist burt frá landinu eftir að leikum er lokið og ef það er staðan þá kemur fólk ekki," segir hún við blaðið og metur það svo að tjónið geti orðið mikið af allt fer á versta veg.