Meira en þriðjungur þeirra sem leita til umboðsmanns skuldara gera það vegna smálánaskulda eða 35 prósent allra sem leita aðstoðar vegna óviðráðanlegrar skuldastöðu. Ásta S. Helgadóttir, umboðsmaður skuldara ræðir við Lindu Blöndal í 21 í kvöld þar sem þetta kemur fram. Stóra verkefni umboðsmanns er að koma þessum hóp til hjálpar þar sem skuldir geta margfaldast með ógnarharða.
„Við köllum þetta skyndilán og þessi fyrirtæki eru á markaði og því ættu þau fyrst og fremst að heyra undir Fjármálaeftirlitið en það gera þau ekki núna”, segir Ásta. Ekki sé vert að banna starfsemina heldur fara leið sem Svíar fóru og það er að auglýsa betur lánakjörin og fræða fólk. „Þessir lánveitendur hér bera enga samfélagslega ábyrgð. Það er ekki hægt að lánafyrirtæki láni svona og svo á bara einhver annar að laga vandann sem af því hlýst“, segir Ásta.
Enn eru mál hjá umboðsmanni sem tengjast hruninu og þar sem unnið er að greiðsluaðlögun, segir Ásta en þau heimili sem fengu ekki slíkt úrræði urðu útundan af ólíkum ástæðum. Ásta leggur áherslu á að vinnan við greiðsluaðlögun snerist fyrst og fremst um samninga manna á milli og að fólk gæti framvísað öllum gögnum til að meta stöðu þess sem og framtíðar framfærslu. Sumir gátu eða vildu ekki gera slíkt, segir Ásta.
Ásta ræðir úrræðin sem stóðu mjög skuldugum einstaklingum til boða eftir hrunið. Sextán þúsund manns hafa sótt um hjálp vegna skulda og eða greiðsluerfiðleika eftir efnahagsrunið eða á undanförnum átta árum eða frá því að embætti Umboðsmanns skuldara var stofnað árið 2010.
Yfir 3100 umsóknir um aðstoð bárust árið 2011 þegar mest lét en aðeins rúmlega 700 umsóknir hafa borist umboðsmanni það sem er af þessu ári.
Á þessu átta ára tímabili frá stofnun tókust 3.298 samningar um greiðsluaðlögun, þar af 1.873 þar sem samið um eftirgjöf allra krafna. Meðaltal eftirgjafar í samningum var 86 prósent niðurfelling, segir í nýjum upplýsingum umboðsmanns.
Yfirveðsettar fasteignir voru líka stórt vandamál en 1230 samningar voru gerðir um greiðsluaðlögun vegna yfirveðsetningar. Alls í 317 tilfellum voru veðkröfur umfram markaðsvirði afmáð.
Umboðsmaður var stofnaður á grunni Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna til að bæta stöðu þeirra sem áttu í skulda og greiðsluerfiðleikum í kjölfar efnahagshrunsins. Slíkur umboðsmaður var þá þegar til á öðrum Norðurlöndum og mun verða starfandi áfram á Íslandi.