Veitendur smálána brenni vítislogum og rotni í mógröf til efsta dags

„Það ættu að verða örlög lögsmámenna, sem notfæra sér neyð og bágindi annarra við innheimtu smálána, að fara í hið neðra og brenna þar í vítislogum á teinum og rotna svo í mógröf, til efsta dags, og ná aldrei augliti guðs.“

Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerir smálánastarfsemi að umfjöllunarefni sínu í grein í Morgunblaðinu í dag.

Þar segir hann veikan lagalegan grundvöll vera fyrir útgáfu slíkra okurvaxtalána. Það birtist meðal annars í því að smálánafyrirtæki virðist ekki innheimta vangoldin lán með lögsókn og kjósi vart að lýsa kröfum í þrotabú.

„Eftir nákvæma rannsókn á dómasöfnum héraðsdómstóla kemur í ljós að ekki hefur gengið einn einasti dómur um réttmæti kröfuræktar í smá lánum.“

Löggjöf hjálpi smálánafyrirtækjunum

Þó er Vilhjálmur andvígur þeirri tillögu þingmanna Samfylkingarinnar að setja lög um starfsemi smálánafyrirtækja.

„Lagasetning af þessu tagi væri sennilega hið versta vopn til varnar þeim sem lenda í þeirri ógæfu að lenda í klóm smálánafyrirtækja. Og tilraun til góðverka til þess eins að vernda óhæfuverk.“

„Vissulega blundar góðmennska í hjörtum aðstandenda þeirra, sem hafa tekið smá lán. Góðverk auka aðeins heilabrot og leiðindi. Góðverk við að aðstoða lántakendur smá lána þjóna ekki lántakendum, heldur aðeins smálánafyrirtækjum og lögsmámennum. Slíkur kristilegur kærleiki frelsar enga sál.“

Löggjöfin efli að hans sögn einungis þessa tegund lánastarfsemi og sé smálánafyrirtækjum til góða.

„Til þess að smálánafyrirtæki þrífist þarf góðverk og hjálpsemi aðstandenda lántaka. Þau góðverk viðhalda starfsemi smálánafyrirtækjanna. Góðverk alþingismanna, að banna smálánastarfsemi, er álíka gagnleg og áfengisbann snemma á síðustu öld. Og álíka árangursríkt og yfirlýsing um fíkniefnalaust Ísland árið 2000.“