Smálánafélög mega tæma reikninga

Í þættinum Ég bara spyr, sem sýndur var á Hringbraut í gærkveldi, kom fram að smálánafyrirtækin hafa fulla heimild til þess að tæma bankareikninga ef svo ber undir, vegna skuldar.

Þetta geta þau gert án sérstakrar viðvörunar, því heimildina sækja þau í skilmálum þeirra sem sækja um smálán í fyrsta sinn. Þeir skilmálar eru oftast 12 til 15 blaðsíður hjá smálánafyrirtækjum, sem Sigríður Laufey Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Creditinfo og fyrrum sviðsstjóri hjá Umboðsmanni skuldara, segir líklegt að fáir kynni sér til fulls.

Fyrirspurnin var borin upp eftir að Bryndís Þóra Jónsdóttir, annar viðmælandi í þættinum, sagði að dóttir sín hefði staðið frammi fyrir því að bankareikningurinn hennar var tæmdur þann 1.september síðastliðinn. Það var vegna 80 þúsund króna skuldar frá smálánafyrirtæki haustið 2012. Sú skuld hafði hækkað í um 170 þúsund krónur, sem var þá skuldfærð af reikning dóttur Bryndísar, sem fyrir vikið átti ekki fyrir húsaleigu.

Í þættinum kom fram að frá því að nýju Neytendalögin tóku gildi, bæri öllum lánveitendum að gera lánshæfismat á umsækjendum. Margir héldu á sínum tíma, að þetta ákvæði laganna, myndi gera út um smálánafyrirtækin en svo var ekki, því þau eru í samstarfi við sænskt fyrirtæki, Creditcheck, sem gerir lánshæfismat á umsækjendum gegn sexþúsundkróna gjaldi. Það er þá greitt til viðbótar við smálánið en litlar upplýsingar eru til um sænska fyrirtækið annað en póstbox í Gautarborg og almennt netfang. Fyrirtækið er þó sagt fá upplýsingar frá Creditinfo og staðfesti Sigríður Laufey Jónsdóttir að sænska fyrirtækið, gæti eins og hver annar sem hefði lögvarða hagsmuni, keypt lánshæfismat hjá þeim.

Þáttinn má líka sjá hér á hringbraut.is.