Smakk / takk fyrir norðan

 Eldsnemma morguns flugum við Bjarni tökumaður frá Reykjavíkur flugvelli, úr kulda og súld, þvert yfir landið og lendum á flugvelli Akureyrar í sól og sumaryl. Þeim Akureyrarbúum finnst nú ekki leiðinlegt að segja \"það er alltaf besta veðrið á Akreyri\" og hafa furðulega oft rétt fyrir sér. 

Fyrsta stopp var tekið á Kaffi Kú sem er fjós og veitingastaður. Já, fjós og veitingastaður. Fólk er ekkert endilega vant því að heyra þessi orð saman en trúið mér, þetta var mikið upplifelsi og sérlega bragðgott. Hann segir mér það hann Einar að þau hugsi sér að opna líka mjólkurböð og hafa það fyrir sér að mjólkurbað sé sérstaklega hollustusamlegt og gott fyrir húð og sál - ég trúi þeim - Þeim tókst svo vel til að blanda saman fjósi og veitingastað að ég held þeim standi allir vegir opnir þegar kemur að einhverju öðru nýstárlegu. 

\"\"

 

Áfram vegin! Að máltíð lokinni á Kaffi Kú skundum við út Eyjarfjörðinn og í átt að Dalvík. Árskógssandur er með fallegri stöðum á landinu og þar var okkur boðið í Bjórböðin. Ég hef aldrei verið á notalegri stað. Bjórböðin standa á dásamlegum reit með náttúruna allt í kring þar sem þú getur baðað þig í umhverfinu, í heitum potti. 

Svo auðvitað bjórbaðið sjálft. Í eins manns herbergi er ætlast til þess að maður fari á adamsklæðunum einum saman í viðarkar fyllt af svokölluðum ungbjór - það er að segja bjór sem hefur ekki fengið að gerjast og er þar af leiðandi laus við alkóhól. Humlar og fleiri efni sem eru í ungbjórnum eru ferlega góð fyrir húðina og segja má að maður verði silkimjúkur að baði loknu. Einstaklingar með húðvandamál til að mynda lofsama bjórböðin. 

\"\"

Það sem gerir Bjórböðin að því sem þau eru er auðvitað verksmiðjan KALDI sem hefur svo sannarlega komið séð og sigrað allan bjór á íslandi! (ef svo má að orði komast). Agnes, eigandi Kalda og Bjórbaðanna segir skemmtilega frá sögu fyrirtækjanna í þætti kvöldsins.

Ég rölti aðeins um Akureyrarbæ og spurðist fyrir um hvað væri skemmtilegt að gera. Mér var ítrekað bent á að fara með á Akureyri Backpackers með góðum vinum sem ég og gerði. Og það var yndislegt! 

Misstu ekki af norðlenskum og skemmtilegum Smakk / Takk þætti í kvöld mánudaginn 11.júní kl 20:00. 

**Snædís**