Smakk takk byrjar á hringbraut

Eins og landinn veit iðar Ísland orðið af menningu og nýjungum. Veitingastaðirnir spretta upp eins og lúpínur og að því virðist, engin leið að halda í við nýjungarnar. Eða hvað ?

Nýjustu þættirnir á Hringbraut heita Smakk Takk og fela þeir í sér að fara með áhorfanda í framandi ferðalag um ólíka heima matarmenningar á Íslandi.    Snædís Snorradóttir fer um hvumpinn og hvampinn til að smakka mat á veitingastöðum og kíkir einnig í nokkrar af okkar framúrskarandi framleiðslum. 

Framúrskarandi framleiðslur ? Jú, við státum okkur af því að framleiða hágæða vörur á mörgum sviðum til að mynda grænmeti, súkkulaði, bjór, osta og brauð. Og auðvitað vert að skoða og fræðast, smakka og upplifa. 

\"\"

Komdu með í gómsætt ferðalag og hver veit nema nokkrir af okkar þekktustu samlöndum bregði fyrir. 

\"\"

\"\"