„Það á að vera okkur öllum verulegt umhugsunarefni að leiðandi alþjóðafyrirtæki á borð við Apple telji Ísland ekki meðal helstu valkosta til byggingar og reksturs gagnavers,“ skrifar Helgi Hjörvar þingflokksformaður Samfylkingarinnar í pistli sínum á hringbraut.is í dag. Hann minnir þar á að staða landsins geri það að verkum að fyrirtæki innan Evrópusambandsins geta ekki dregið virðisaukaskatt frá skattgreiðslum sínum vegna þjónustukaupa hér á landi, enda sé Ísland utan hins sameiginlega virðisaukaskattskerfis sambandsins. En fleira komi til: „Til þessa hafa þrír þættir þótt skipta miklu máli um staðarval slíkra verkefna,“ skrifar Helgi og heldur áfram: „Í fyrsta lagi ívilnanir og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi, í öðru lagi aðgangur að hagkvæmri grænni orku og í þriðja lagi náttúrleg kæling.“ Af hverju kemur Danmörk þá frekar til greina en Ísland fyrir gagnaver, spyr þingflokksformaðurinn undrandi og skrifar enn frekar: „Það hljóta því að vakna áleitnar spurningar sem lúta að stöðu Íslands að öðru leyti; svo sem smæð efnahagskerfisins, staða gjaldmiðilsins og stjórnmálaástandið.“ Og Helgi er ekki hættur: „En kannski er það viðhorfið til erlendrar fjárfestingar sem er vandamálið, en sem kunnugt er hefur forsætisráðherra líkt erlendri fjárfestingu við skuldsetningu og sagt að best sé að innlend fjárfesting fjármagni nýsköpunarverkefni.“
Pistil Helga má finna í heild sinni í pistladálki hringbrautar.is þar sem fjölmargt áhrifafólk í íslensku þjóðlífi stingur reglulega niður penna.
Smæð og gjaldmiðill fæla
Fleiri fréttir
Nýjast