Smábátahöfnin er að liðast í sundur

 

 

Björgunarsveitir á Austurlandi hafa víða verið kallaðar út. Á Eskifirði er ástandið einna verst. Samkvæmt fregnum þaðan eru þök að fara af tveimur eða þremur húsum, smábátahöfnin er að liðast í sundur og skemmdir hafa orðið á tveimur bryggjum. Að auki er ýmislegt rusl og drasl fjúkandi um bæinn. Verið er að senda liðsauka frá Reyðarfirði til Eskifjarðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Annars staðar á Austufjörðum hefur ástandið ekki verið eins slæmt. Á Reyðarfirði fauk þó klæðning af skrifstofubyggingu, á Fáskrúðsfirði fuku fiskkör og trampólín, þakkantur losnaði af bæ í Þistilfirði, björgunarsveitirn á Höfn tryggði með störfum í nótt að bátar sem losnað höfðu yrðu ekki ónýtir og á Vopnafirði voru niðurföll hreinsuð þar sem flæddi inn í kjallara húss.

Á áttunda tug björgunarmanna hafa tekið þátt í aðgerðum næturinnar á Austurlandi eða staðið vaktina í húsi tilbúnir til að takast á við afleiðingar veðursins.