Slysið í silfru: kínverska konan er látin

Kín­versk kona, sem var bjargað meðvitundarlausri úr Silfru á Þingvöllum á þriðjudag, er látin. Hún var 26 ára göm­ul. Kon­an hafði verið ásamt manni sín­um á veg­um ferðaþjón­ustu­fyr­ir­tæk­is að kafa í gjánni.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um lög­regl­unn­ar á Suður­landi sökk kon­an niður á um 30 metra dýpi og var henni eft­ir nokk­urn tíma komið upp á yf­ir­borðið meðvit­und­ar­lausri. Tilkynning um slysið barst í hádeginu á þriðjudag og var þegar kallað eft­ir aðstoð þyrlu Land­helg­is­gæslunnar sem flutti kon­una á Reykja­vík­ur­flug­völl þar sem sjúkra­bíll beið og flutti hana á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans. Þar var hún úr­sk­urðuð lát­in í dag.

Þorgrím­ur Óli Sig­urðsson, aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn á Suður­landi, seg­ir við mbl.is í dag að búnaður­ konunnar, sem skilinn var eftir í gjánni á þriðjudag, hafi nú verið flutt­ur til rann­sókn­ar hjá tækni­deild lög­regl­unn­ar.

Á þess­ari stundu er ekki vitað hvað olli slys­inu: \"Hún sökk niður á 30 metra dýpi, en at­vikið átti sér upp­haf­lega stað rétt und­ir vatns­yf­ir­borðinu. Hún virðist lenda í ein­hverj­um straumi,“ seg­ir Þorgrím­ur Óli í sam­tali við mbl.is en talið er að kon­an hafi verið í kafi í um 10 mín­út­ur áður en henni var komið upp á yf­ir­borðið.