90 ár eru liðin frá stofnun Slysavarnafélags Íslands, en óhætt er að segja að stofnun þess hafi markað upphaf skipulagðs björgunar- og slysavarnastarfs á Íslandi.
Slysavarnafélagið Landsbjörg heldur upp á þessi merku tímamót með afmæliskaffi í anddyri Björgunarmiðstöðvarinnar við Skógarhlíð 14, í dag 29. janúar klukkan frá 14:00 til 16:00.
Í kvöld fagna félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörg tímamótunum víða um land. Klukkan 20:00 verður afmælisveisla í húsnæði allra björgunarsveita og slysavarnadeilda hringinn í kringum landið, sem endar á því að skotið verður upp hvítri sól á öllum stöðum klukkan 21:00.