Þeir höfuðborgarbúar sem lögðu talsvert land undir fót um helgina kynntust því af eigin raun að sumarið kemur seint um mest allt land, enda eru heiðar ennþá snjóþungar og æði vetrarlegar yfir að líta.
Þannig var farið með Steingrímsfjarðarheiði í gærdag þegar ferðafólk að vestan lagði upp til síns heima, en hrímþoka var á heiðinni, eins stigs hiti og éljagangur á löngum köflum hennar milli Djúps og Steingrímsfjarðar. Og landsmenn munu þurfa að sætta sig við veðurlag af þessu tagi næstu daga, því hiti mun vart fara mikið yfir frostmarkið fram á helgina fyrir norðan og upp til heiða vestra enda ríkjandi noðanátt í kortunum, en skýjað verður þess utan um mestan part landsins og lítil von á sólarglætu á síðustu viku maímánaðar.
Veðurfræðingar gera ekki ráð fyrir að hitinn taki við sér að nokkru ráði á næstu dögum, heldur haldist hann vel undir tveggja stafa tölunni fram á helgina sem skilur að maí og júní.
Góður tíðindin eru þau að þetta svala loft, sem verið hefur viðvarandi og án hléa, hefur lítil áhrif á gróðurinn önnur en þau að hann tekur seint við sér.