Slydda í kortunum og lágar hitatölur

Haustið minnir nokkuð rækilega á sig á landinu bláa á næstu dögum, en hitatölur verða ekki einungis í námunda við núllið heldur sýna kortin slyddu og hraglanda víða um land. Hálendisleiðir eru þegar farnar að lokast, svo sem upp á dölum norðanlands.

Það verður sumsé ekta íslenskt haustveður næstu daga ef marka má spá Veðurstofu Íslands. Vindur verður allt að 15 metrar á sekúndu, hiti um eða undir tíu gráðum og rigning eða skúrir, en á Vestfjörðum og á Norðurlandi má búast við næturfrosti og varla nokkrum hita svo heitið geti yfir daginn, kannski þremur eða fjórum gráðum.

Veðurhorfur á landsbyggðinni í dag eru svo að búast má við vestan 8 til 13 m/s og smá væta norðan og austan lands í fyrstu, en annars vaxandi suðaustanátt, 8 til 15 m/s og fer að rigna á Suður- og Vesturlandi með morgninum. Hiti yfirleitt 3 til 8 stig að deginum.

Á höfuðborgarsvæðinu gengur í suðaustan 8 til 15 m/s og fer að rigna, en hægari og styttir upp í kvöld. Hiti 3 til 8 stig.

Á morgun má svo búast við svipuðu veðri. Á miðvikudaginn er svo gert ráð fyrir slydduél og að hitinn verði aðeins 0 til 5 stig.