Slúður og kjaftasögur í kvennaráði

Rithöfundurinn Tobba Marinós og ritstjórinn Atli Fannar Bjarkason ræða slúður og kjaftasögur í Kvennaráðum í kvöld, en á stundum hefur verið sagt að gróusagnahefðin á Íslandi sé svo rík í huga landans að líkja megi við þjóðaríþrótt. 


Tobba Marinós hefur eitt og annað að segja um slúður og kjaftasögur í samfélaginu enda starfaði hún um hríð sem blaðamaður á Séð og Heyrt og hefur sjálf lent á milli tannanna á fólki. Hún segist hafa margoft heyrt kjaftasögur af sjálfri sér og þær hafi verið misskemmtilegar en ein sú minnisstæðasta hafi verið þegar hún átti að ganga með barn Loga Bergmann. 


Atli Fannar ritstjóri Nútímans segir umræðuna í raun ekki hafa breyst með tilkomu internetsins og kommentakerfa fjölmiðla. Munurinn sé einfaldlega sá að nú sé það opinberara hvað fólk lætur út úr sér og það sé einfaldlega jákvætt; þannig geti maður frekar flokkað fólk eftir skoðunum. 


Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðingur og rithöfundur hefur skoðað orðróma og uppruna þeirra. Hún segir Britney Spears vera ágætis dæmi um það hvernig þekkt fólk er upphafið þegar vel gengur en aftur á móti sé athyglin ekki minni þegar halla fer undan fæti.


Horfðu á klippur úr þættinum hér: