Óformlegar meirihlutaviðræður Samfylkingarinnar, Vinstri Grænna, Pírata og Viðreisnar standa enn yfir í Reykjavík, segir þar - og bent á að ítrekaðar fregnir af ófrávíkjanlegum kröfum Viðreisnar um að Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar og núverandi borgarstjóri eigi að víkja úr borgarstjórarstóli séu rangar.
Pawel Bartozek, borgarfulltrúi Viðreisnar staðfestir þetta í samtali við fréttastofuna. „Þetta er ekki rétt, borgarstjórnarflokkur Viðreisnar hefur ekki verið að setja væntanlegum viðmælendum sínum neina afarkosti, hvorki varðandi skipan í einstök embætti eða málefni. Við erum að fara í viðræður og við munum ekki gefa út yfirlýsingar um okkar samningsstöðu í fjölmiðlum hvað það varðar, né heldur eru það góður bragur á því að fara í slíkar viðræður með því að setja viðmælendum einhvers konar afarkosti. Þetta er slúður, já.“