Lögregla fékk í dag tilkynningu vegna eldsvoða í Kópavogi. Þegar hún kom á vettvang kom í ljós að ekki var allt sem sýndist, það var enginn eldsvoði. Greint er frá málinu í dagbók lögreglunnar.
Mikill reykur og duft var í húsnæðinu, en það var ekki vegna elds, heldur vegna þess að slökkvitæki hafði fallið í jörðina. Það gerðist þegar íbúi var að taka til í geymslunni hjá sér og slökkvitækið datt við það og það haft þessi miklu áhrif.
Fram kemur að engum hafi orðið meint af vegna reyksins og duftsins úr tækinu.