Slökkviliðið bjargaði ketti en komst ekki frá vettvangi vegna bíls sem lagði ólöglega

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu byrjaði daginn á því að bjarga kettinum Atlas ofan af húsþaki í Hlíðunum. Björgunin gekk vel en þegar Atlas var kominn í öruggt skjól hjá eiganda sínum lenti slökkviliðið í leiðinda atviki.

Slökkviliðið lenti í talsverðum vandræðum að komast leiða sinn þar sem bíl var lagt ólöglega og dælubíll slökkviliðsins komst ekki framhjá honum.

Slökkviliðið brýnir fyrir fólki að vera meðvitað um að leggja ekki ökutækjum þar sem slíkt er bannað. Þetta veldur miklum vandræðum í útköllum, fyrir slökkviliðið, sjúkrabíla og lögreglubíla.