Slökkt verði á júróvisjón í mótmælaskyni

Nokkur viðbrögð hafa orðið við því að palestínski fáninn verði ekki sýnilegur þegar Ervóvisjón, keppnin sem Íslendingar elska, stendur sem hæst. Skiptar skoðanir eru um hvernig pólitík og list fer saman eða ekki saman. Logi Már Einarsson arkitekt á Akureyri og oddviti Samfylkingar í bæjarstjórn ætlar að grípa til mótmæla. Hann segir:

\"Nú hefur verið tilkynnt að palestínski fáninn verði ekki leyfur á lokakeppni Júróvisíon. Ég mun því leggja það til, á fjölskyldufundi, að slökkt verði á sjónvarpinu á meðan keppnin fer fram og hlustað verði á gæðatónlist af hljómplötum á meðan. Ég á von á því að tillagan verði samþykkt samhljóða,\" segir Logi á facebook og tengir við mynd af palestínska fánann við aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna máli sínu til áréttingar.

Í umræðu á síðu bæjarfulltrúans kemur fram sú spurning að ekki sé auðvelt að skilja hvers vegna Ísrael eigi sæti í Evróvisjón.

Greta Salome hélt utan í morgun til farar með fríðu föruneyti og styttist nú í stóru stundina þar sem a.m.k. einn veðbanki spáir framlagi Íslands sjálfu 16. sætinu.