Íslendingar hafa bætt metið í utanerðum. Fyrstu átta mánuði ársins voru utanferðir Íslendinga 351 þúsund, en áður voru þær flestar árið 2007, eða 322 þúsund. Þetta kemur fram í hagsjá Landsbankans.
Utanlandsferðir Íslendinga námu 293 þúsund á sama tímabili í fyrra og hafa því aukist um 20% milli ára. Þá aukningu má rekja að miklu leyti til mikillar aukningar í utanlandsferðum í júní síðastliðnum og skýrist það væntanlega að miklu leyti af þátttöku knattspyrnulandsliðsins í lokamóti EM, en margir Íslendingar fóru a.m.k. á einn leik með liðinu. Á fyrstu 8 mánuðum ársins voru utanlandsferðirnar 58 þúsund fleiri en á sama tíma í fyrra en bara nú í júní voru ferðirnar rúmlega 19 þúsund fleiri en í fyrra. Aukningin í júní einum nemur því um þriðjungi af heildaraukningu milli ára. Hlutfallslega jókst fjöldi utanlandsferða um 40% í júní en horft framhjá honum hefur aukningin á 12 mánaða grundvelli verið á bilinu 8,4% til 24% í einstökum mánuðum ársins. Fyrir utan júní var aukningin á bilinu 23-24% í febrúar, mars og júlí. Minnst var aukningin í janúar og apríl á bilinu 8-10%.