Slitabú bankanna úr höndum alþingis

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar segir að uppgjör slitabúa föllnu bankanna sé að öllu leyti úr höndum Alþingis og þar með að fullu á ábyrgð ríkisstjórnarinnar.

Þetta kemur fram í samtali hennar við Ólafana í samnefndum þætti á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld, en þar segir ennfremur að samráð við stjórnarandstöðu um þetta stóra hagsmunamál þjóðarinnar hafi verið ófullnægjandi og að kynning á því sé ógagnsæ úr hófi fram.

Í byrjun þáttarins fjalla Ólafarnir, Arnarson og Ísleifsson um stöðugleikaframlag föllnu bankanna og vaxtahækkun Seðlabankans og segja að við blasi að útganga kröfuhafanna verði á kostnað íslenskra fyrirtækja og heimila.

Ólafarnir eru frumsýndir klukkan 21:30 í kvöld.