Slímsitjandi lið fær meiri völd

„Mjög ört hefur dregið úr valdi íslenskra stjórnmálamanna. Slímsitjandi embættislið fær sífellt meiri völd. Gagnrýnislaus innleiðing EES-reglna, langt umfram þörf samkvæmt þeim samningi, ýtir enn undir þessa þróun.“

Þetta er stutt sýnishorn úr Reykjavíkurbréfi Morgublaðsins frá því í morgun.

„Forystumenn á vinnumarkaði viðurkenna þetta með óbeinum hætti. Þess vegna þykir þeim við hæfi að ólýðræðislegir og ábyrgðarlausir valdamenn hafi hærri laun en þeir sem enn setja landinu lög, að formi til, segir þar ennfremur.

„Formönnum verklýðsfélaga þykir einnig sjálfsagt að þingmenn hafi ekki nema sem svari 70% af launum þeirra sjálfra, þótt atvinnuöryggi þingmanna sé miklu minna, vinnutíminn lengri (við hvað er önnur saga) og hin formlega ábyrgð ríkuleg.“