Íslenska ríkið braut ekki á ragnari hall og gesti jónssyni

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hafi ekki brotið á lög­mönn­unum Ragn­ari H. Hall og Gesti Jóns­syni þegar þeir voru dæmdir í rétt­ar­fars­sekt upp á eina milljón króna hver fyrir að segja sig frá Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða í apríl 2013. Hægt er að lesa dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í heild sinni hér.

Í Al Than­i-­mál­inu voru þrír af æðstu stjórn­endum Kaup­þings: Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sig­urður Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son ákærðir ásamt Ólafi Ólafs­syni, einum stærsta eig­enda bank­ans fyrir hrun, fyrir umboðs­svik, mark­aðs­mis­notkun og hlut­deild í umboðs­svik­um.

Upp­haf­lega átti máls­með­ferð í Al Than­i-­mál­inu að fara fram í hér­aðs­dómi í apríl 2013 en henni var frestað þegar Gestur Jóns­son og Ragnar H. Hall, verj­endur Sig­urðar Ein­ars­sonar og Ólafs Ólafs­son­ar, sögðu sig frá mál­inu þremur dögum áður en að aðal­með­ferð átti að fara fram

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2018-10-30-islenska-rikid-braut-ekki-ragnari-h-hall-og-gesti-jonssyni/