Ef marka má sölusíðuna Brask og Brall á facebook er ennþá gríðarlegur áhugi fyrir hinum klassíska Nokia 3310 síma en einn notandi auglýsti ónotað eintak til sölu fyrir litlar 15.000 krónur.
Það verð virðist þó ekki ætla að haldast þar sem sannkallað verðstríð hefur brotist út í athugasemdum um færsluna og er líklegt að síminn endi á því að fara á mun meira.
Í færslunni segi Þór EB sem selur símann að hér sé um að ræða einstakt tækifæri til þess að flýja samfélagsmiðla:
„Til sölu er hinn fornfrægi Nokia 3310 sem tryllti lýðinn hér á árum áður. Midi hringitónar, upprunalegi Snake leikurinn og besta appið er eflaust reiknivélin. Engir samfélagsmiðlar!
Fannst í geymslunni, ónotaður með plastinu ennþá yfir skjánum. Nýtt batterí sett í og hleðslutækið sem er ónotað fylgir með.
Fáðu þér svona frísíma og vertu í fríi frá öllu óþarfa áreitinu!
ps. Nova kortin virka amk í þessa síma, eflaust hin líka.“
Nokia 3310 voru með vinsælustu farsímum tíunda áratugarins og voru oft sagði óbrjótanlegir og eflaust margir sem hafa átt eintak af slíkum síma einhvern tímann á lífsleiðinni.
Síminn er eins og er ennþá óseldur og óvíst hvert endanlegt verð hans verður.