Með kökk í hálsi og tár í augum: líf þórs breyttist í martröð – þrisvar á spítala síðasta mánuðinn

„Þetta er hann Þór bróðir minn. Hjartagóður og með eindæmum duglegur maður sem kvartar ekki yfir hlutum sem aðrir gera. Hann er líka þroskahamlaður og flogaveikur.“

Á þessum orðum hefst færsla Önnu Huldu Ólafsdóttur, sem hún birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Þar sagðist hún setja færsluna inn með kökk í hálsi og tár í augunum. Myndirnar að ofan eru allar nýlegar.

Í samtali við Hringbraut segir hún bróður sinn Þór Ólafsson búa á sambýli á vegum Félagsbústaða. Dvöl hans þar hafi þó einungis átt að vera tímabundin lausn og að allir sem búi með honum á sambýlinu séu miklu yngri en hann. „Hann býr á sambýli sem átti að vera tímabundin lausn þegar hann komst loksins þar að árið 2015 (þá 45 ára),“ segir hún í færslunni.

„Hann hefur mjög slæmt jafnvægisskyn og þarf að ganga með göngugrind. Íbúðin hans er á annarri hæð og til þess að komast inn í hana þarf hann að ganga upp mjög erfiðan stiga,“ bætir Anna Hulda við.

Hún greinir frá því að í gær hafi Þór dottið í stiganum og brotið á sér fótinn. „Það var þriðja heimsóknin hans á spítalann síðasta mánuðinn, en hann datt tvisvar fyrir utan hjá sér í síðustu viku þar sem hann þurfti að láta sauma og líma sig saman. Hann hefur dottið svo ótal oft það sem af er þessu ári að ég er búin að missa töluna. Tvisvar blæddi inn á heilann þar sem hann þurfti innlögn á spítala í einhverja daga.“

Anna Hulda segir aðstandendur Þórs fá synjun á eftir synjun í örvæntingarfullum tilraunum sínum til að koma honum í betra húsnæði. „Ég set þessa færslu hér út í cosmósið af örvæntingu með von um að það hreyfi við einhverju þar sem að við fáum synjun eftir synjun að koma honum í betra húsnæði þar sem að hann kemst með göngugrindina inn til sín.

Hún segir við Hringbraut að aðstandendur vilji einungis koma Þór í húsnæði þar sem er að finna betra aðgengi fyrir hann. Þau sæki um alls staðar sem hægt er en reka sig á vegg í kerfinu.

Að lokum segir Anna Hulda í færslunni: „Ég er mjög þakklát fyrir gott starfsfólk sem hefur hjálpað honum. En þetta gengur bara alls ekki. Við gefumst ekki upp!“