Sláandi verðmunur á tannlækningum

Verðmunur á tannlæknaþjónustu á Íslandi og fjölmörgum löndum á meginlandi Evrópu er sláandi, allt frá því að vera helmingi lægri yfir í það að vera fjórfalt ódýrari en þekkst hefur heima á Fróni.

Þetta kemur fram í þættinum Brosað á ný sem frumsýndur er á Hringbraut kl. 20:00 í kvöld en þar leggur sjónvarpsmaðurinn Sigmundur Ernir land undir fót og sækir höfuðborg Ungverjalands heim, sjálfa Búdapest á bökkum Dónár, en þar er rekin einhver dáðasta og verðlaunaðasta tannlæknamiðstöð mið-Evrópu, KrativDental sem slegið hefur í gegn á meðal íbúa í vestan- og norðanverðri Evrópu - og er líklega orðin \"stærsta\" tannlæknastofa Norðmanna, svo dæmi sé tekið.

Í þættinum kemur vel fram hvað Ungverjar eru framarlega í alhliða tannlæknaþjónustu, enda er menntun þeirra, reynsla og allur tækjakostur á heimsmælikvarða, að ekki sé talað um verðið, en viðskiptavinir stofunnar fá skoðun, röntgenmyndatöku og aðgerðaráætlun sér að kostnaðarlausu, en stofan tekur svo þátt í ferða- og gistikostnaði ef kúnninn ákveður að þiggja þjónustu stofunnar. 

Í þættinum er rætt við fjölda Íslendinga sem hafa leitað til KreativDental á síðustu misserum, svo og eigendur og stjórnendur stofunnar, auk þess að Grímur Axelsson kemur við sögu,en hann hefur á síðustu árum aðstoðað Íslendinga í tannlæknaferðum til Búdapest.  

Þátturinn hefst sem fyrr segir klukkan 20:00 í kvöld. Myndatöku annaðist Haukur Sigurbjörnsson og stjórn upptöku var í höndum Sigmundar Ernis.