Formlega er skíðavertíðinni í Hlíðarfjalli, skíðasvæði Akureyrar, lokið en lyfturnar verða þó ræstar aftur með viðhöfn á morgun, föstudaginn kl. 15 og látnar ganga viðstöðulaust í 32 tíma eða til kl. 23 á laugardagskvöldið. Boðið verður upp á alls kyns húllumhæ í Fjallinu þegar gestir kveðja vetur og fagna vorinu, segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.
Á miðnætti annað kvöld, föstudaginn 6. maí, verður m.a. boðið upp á hamborgara frá Norðlenska ásamt léttum veitingum frá Ölgerðinni. Sólarupprás á laugardagsmorgun verður kl. 4.15. Gestir geta keypt morgunmat frá Hótel KEA í veitingasölunni frá kl. 4-8. Klukkan 23 á laugardagskvöld verður aftur slökkt á skíðalyftunum eftir 32ja tíma stanslausa skíðahátíð og skíðaveturinn kvaddur með flugeldum í Hlíðarfjalli.
Flugfélag Íslands tekur þátt í fjörinu og skorar á skíðafólk fyrir sunnan að skella sér norður til að renna sér í vorrökkrinu og fagna á skíðum dagrenningu á laugardagsmorgun. Allir farþegar Flugfélags Íslands til Akureyrar geta framvísað brottfararspjaldi í Fjallinu dagsettu föstudaginn 6. eða laugardaginn 7. maí og fengið 50% afslátt af lyftumiðum.
Þeir sem kjósa frekar að hjóla en renna sér á skíðum geta tekið hjólhestana með sér í Fjarkann og látið vaða niður „Suðurbrautina“ svokölluðu. Þar hefur Hjólreiðafélag Akureyrar útbúið sérstaka þrautahjólabraut. Hægt verður að kaupa stakar ferðir upp með Fjarkanum eða nota vetrarpassann.
Gestir í Hlíðarfjalli urðu um 70.000 sl. vetur.
Slá upp veislu og skíða alla nóttina
Fleiri fréttir
Nýjast