Skýtur föstum skotum á formann vr

Ef við get­um ekki sam­mælst um að nýta okk­ur alþjóðleg­ar sam­an­b­urðartöl­ur um hag­vöxt, kaup­mátt, jöfnuð o.s.frv. þá gæt­um við allt eins hætt að telja mörk­in í fót­bolta­leikj­um og látið bara til­finn­ing­una segja okk­ur hvort við erum að vinna eða tapa.“

Þetta skrif­ar Ásta Fjeld­sted, fram­kvæmda­stjóri Viðskiptaráðs, í grein sem birt­ist í ViðskiptaMogg­an­um í dag. Þar skýt­ur hún föst­um skot­um á Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son, formann VR, vegna um­mæla hans um op­in­ber­ar hag­töl­ur. Í þætt­in­um Þjóðbraut, á sjón­varps­stöðinni Hring­braut, sagði Ragn­ar Þór að ekki væri hægt að reiða sig á op­in­ber­ar hag­töl­ur eins og frá OECD og Eurostat vegna þess að þær lýstu ekki raun­veru­leik­an­um. 

Ásta skrif­ar að það komi á óvart að ekki glenn­ist fleiri augu af undr­un þegar for­ystumaður í verka­lýðshreyf­ingu hafni töl­fræði og staðreynd­um. 

„Sé ætl­un­in að hafna al­farið slíkri viður­kenndri aðferðafræði en treysta frem­ur á heima­gerðar rann­sókn­ir á sér­völd­um og hent­ug­um hóp­um verður ekki annað séð en að búið sé að taka ákvörðun um að kasta fyr­ir róða upp­lýstri umræðu, en taka í staðinn upp ósiðina úr am­er­ískri póli­tík.“

Hún seg­ir á að þótt op­in­ber­ar rann­sókn­ir séu ekki heil­ag­ar, og eng­in ein rann­sókn segi alla sög­una, sé gal­in hug­mynd að hafna með öllu að nýta sér bestu mögu­legu sam­an­b­urðargögn.