Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist gera ráð fyrir því að það skýrist í dag hvort verkalýðsfélögin sex og Samtök atvinnulífsins nái saman eður ei. Viðræðum var haldið áfram í morgun. RÚV.is greinir frá.
Ragnar Þór segir í samtali við RÚV að stóru málin sem mestu skipta yrðu nú rædd. „Við vorum langt fram á kvöld í gær og erum að byrja aftur núna, sjá hvort að hægt sé að lenda þessu. Ég held að þetta skýrist í dag, reikna með því. Svo verður að sjá bara hvert framhaldið verður. Ég hugsa að það komi allavega einhver niðurstaða í viðræðurnar eftir daginn. Ég tel okkur vera að nálgast þann punkt að það skýrist hvort við séum að ná saman eða ekki.“
Hann segir að laun og vinnutími ásamt öðru séu hluti af einni niðurstöðu sem þurfi að púsla saman. „Ef það fer eitthvað að glæðast í viðræðum hérna hjá okkur núna eru stjórnvöld alveg eftir.“