Skýr stefna að nýta olíuauðlindirnar

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra sagði í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi að það væri skýr stefna þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr að völdum að nýta bæri þær olíu- og gasauðlindir sem hugsanlega fyndust undir hafssvæðinu norðan við Ísland. Það kæmi henni verulega á óvart að Samfylkingin hefði snúið af leið í þessu máli eins samþykkt ályktun þess efnis á landsfundi flokksins um helgina kveður á um.


Vigdísi Hauksdóttur fyrirspyrjanda var mjög tíðrætt um téða stefnubreytingu Samfylkingarinnar í þinginu í dag og sagði að nú væri flokkurinn ekki einasta kominn á leiðarenda í ESB-málinu heldur væri hann einnig að sveigja af leið í þessu veikamikla máli.


"Það er alveg ótrúlegt að rýna í þennan landsfund Samfylkingarinnar en hann sannar það að flokkurinn logar stafnanna á milli og er algjörlega í tætlum fyrst það er horfið frá nokkurra mánaða atkvæðagreiðslu," sagði Vigdís Hauksdóttir á Alþingi í dag.,