Skýr merki um mengun í mývatni

Skýr og augljós merki eru um aukna mengun í Mývatni af mannavöldum á síðustu tveimur sumrum að því er Árni Einarsson, forstöðumaður Náttúrrannsóknarstöðvarinnar við Mývatn segir í Fréttablaðinu í dag.

Um svokallaða ofauðgun baktería í vatninu er að ræða svo áfram sé vitnað í frétt blaðsins, en þar segir að mikið magn næringarefna berist í vatnið, líklega með grunnvatni, en þau berast þangað með losun frá þéttbýli, iðnrekstri og áburðargjöf. 

Árni segir að um beint orsakasamband sé að ræða við hvarf kúluskíts úr Mývatni, sem finnist aðeins í einu öðru vatni í Japan. Þar hafi sami vandi verið til staðar og öllu skólpi af mannavöldum verið veitt frá vatnakerfinu til að verja lífríki þess. 

Nitur, köfnunarefni og fosfór sem berast með frárennsli í vatnið valda því að fjölgun blábakteríu í vatninu verður slík að hún taki lífríkið yfir suma daga að sögn Árna.