Skynsemin sigraði: þjóðin hlýddi

Þjóðarsamstaða varð um það í gærdag að halda sig heima við og taka viðvaranir yfirvalda alvarlega. Stóra fréttin í öllu óskapans óveðrinu er að skynbsemin sigraði; þjóðin hlýddi.

Björgunarsveitarmenn sem Hringbraut hefur haft samband við í dag eru á einu máli um að samstarf yfirvakda og fjölmiðla hafi gengið framar vonum þegar kom að fyrirbyggjandi aðgerðum vegna fárviðrisins sem fór yfir landið síðasta sólarhring. Varla hafi nokkur sála verið á ferli þegar ofsaveðrið gekk yfir - og athygli hafi einnig vakið að viðvarandi hafi náð til allra þeirra ellefu þúsund útlendinga sem nú gista landið, en engin vandræði hlutust af ferðalögum þeirra á meðan á illviðrinu stóð.

Auðar götur gerðu það svo auðvitað að verkum að björgunarsveitarfólk, lögregla og slökkvilið áttu greiðari leið um götur borgar og bæja.