Skylda stjórnvalda að tryggja að námsbækur á íslandi séu í hæsta gæðaflokki

„Hlutverk hins opinbera við að tryggja framboð og gæði námsefnis í samræmi við námskrár og kennsluhætti sem og staða markaða fyrir námsbækur voru meginviðfangsefni alþjóðlegs málþings sem fram fór í Reykjavík í sumar. Málþingið var skipulagt að undirlagi mennta- og menningarmálaráðherra og kallaðist á við vel heppnað þing sem Nick Gibb, menntamálaráðherra Bretlands, hélt í London í fyrra.“

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Þar segir enn fremur:

„Markaðir fyrir námsbækur og kennsluefni breytast hratt með örri þróun stafrænnar tækni. Mörg lönd hafa tekið skref í átt að notkun stafrænnar tækni og námsefnis í skólum, en rannsóknir skortir varðandi afleiðingar þess og árangur af notkun slíkra námsgagna. Á málþinginu fjölluðu sérfræðingar víða að úr heiminum  um þessi mál og skiptust á skoðunum um hvernig stuðla megi að gerð hágæða námsefnis og hvert hlutverk markaðarins og hins opinbera ætti að vera. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sagði:

„Vönduð námsgögn og námsbækur skipta sköpum fyrir námsframvindu og auka jöfnuð meðal nemenda. Það er skylda stjórnvalda að tryggja að námsbækur á Íslandi séu í hæsta gæðaflokki. Málþingið er liður í því og mótun menntastefnu til ársins 2030.“