SAF-Samtök ferðaþjónustunnar gera skýlausa kröfu um að áformaðar breytingar á virðisaukaskatti verði að fullu dregnar til baka. Ríkisvaldið hefur staðið sig illa því lítið af tekjum vegna ferðamanna hefur farið í uppbyggingu innviða og ferðamannastaða eða aðrar aðgerðir til að skapa sátt við umhverfið.
Styrking krónunnar og hækkun launa síðustu misseri hefur leitt til tuttugu til þrjátíu prósenta hækkunar í erlendum gjaldmiðlum. Þetta skerðir samkeppnishæfni fyrirtækja í ferðaþjónustu verulega.
Á sama tíma hefu afkoma ferðaþjónustunnar versnað til muna. Þó svo að ferðamönnum hafi fjölgað. Fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa mörg hver tapað miklu vegna samninga um fast verð í erlendum gjaldmiðlum.
Gistinóttum hefur þegar fækkað og mikið er um afbókanir gistingar og hópa á þessu ári. Við þessar aðstæður er fyrirhuguð tvöföldun virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna sem olí á eld.