Sky nánast skellti á kristin í beinni

Kristinn Hrafnsson blaðamaður og talsmaður Wikileaks segir að SKY sjónvarpsstöðin hafi nánast skellt á sig í miðju viðtali eftir að stöðin hafði haft frumkvæði að því að ræða við hann.

Sameinuðu þjóðirnar birtu í fyrradag skýrslu þar sem m.a. var áætlað að nærri 19.000 óbreyttir borgarar hefðu verið drepnir í Írak á 19 mánaða tímabili, frá janúar 2014. Kristinn greinir frá því á facebooksíðu sinni að Sky sjónvarpsstöðin hafið falið blaðamanni í skyndi í að redda viðmælenda til að fjalla um tölurnar sem leiddi til þess að stöðin hringdi í Kristin og falaðist eftir viðtali sem hann samþykkti.

Gefum þá þessum fyrrum fréttamanni Rúv og 365 orðið:

„Aðspurður sagði ég að tölurnar yfir hina látnu væru óhugnalegar en kæmu ekki á óvart. Fleiri óbreyttir borgarar hefðu t.d. fallið í skelfilegu borgarastríði trúarhópa í Írak 2006-2007 skv. WikiLeaks gögnunum. Frá júlí 2006 til júlí 2007 hefðu hátt í 30 þúsund verið drepnir. Landið var þá hernumið og á ábyrgð herja Bandaríkjanna og Bretlands. 
Já en hvað með ISIL?, spurði fréttakonan, hissa á þessum ,,gamla\" samjöfnuði. 
Ég dró ekki dul á andúð mína á því hyski en lét þess getið að rétt væri að huga að sögunni og því, að hin ólögmæta innrás í Írak 2003 og alvarleg mistök í kjölfar hennar, hefðu plægt akurinn fyrir þessa öfga og skelfilegt blóðbað trúarhópa.
Ég var kvaddur úr loftinu með snautlegri athugasemd um umdeilanleika í túlkun sögunnar,“ skrifar Kristinn á facebook.

Hann segist forviða yfir þessu og veltir fyrir sér hvort það þurfi eitthvað að þrefa um ábyrgð þeirra „sem lyftu lokinu af Pandóruboxinu þannig að plágurnar flæddu út“.

„Ef blaðamenn og almenningur geta ekki einu sinni hugað að samhengi atburða síðasta áratugar, er þá ekki einsýnt að við erum líkleg til að endurtaka öll helstu og blóðugustu mistök sögunnar?“ Spyr Kristinn.