Fjallað er í erlendum miðlum um hetjudáð frönsku sérsveitarinnar sem réð niðurlögum hryðjuverkamanna í Bataclan. NBC hefur birt viðtal við stjórnanda sérsveitarinnar sem lýsir með dramatískum hætti hvað blasti við þeim við komu í tónleikahöllina.
Gestir lágu út um allt, gólfið flaut í blóði. Enginn innanhúss þorði að hreyfa sig af ótta við að verða skotinn. Það sveið sérsveitarmönnum að geta ekki hjálpað deyjandi fólki en forgangur var lagður á að uppræta terroristana.
Eftir misheppnaða „samninga“ réðist sérsveitin til inngöngu með skjöld fyrir framan sig. Skotið var á þá vinstri, hægri en þeir gátu ekki skotið á móti því milli þeirra og hryðjuverkamannanna var fjöldi franskra gísla sem hefði getað fallið fyrir kúlum lögreglu.
Terroristarnir tóku svo eigið líf.
Stjórnandi sérsveitarinnar telur að lögregla hafi bjargað fjölda mannslífa.
Sjá má myndbandið hér.