Skutu af loftriffli á þingvöllum

Sér­sveit lög­regl­unn­ar hand­tók fjög­ur ung­menni seint í gær­kvöldi en þau höfðu verið að skjóta úr loftriffli og litl­um riffli við Þing­valla­vatn þar sem fólk var við veiðar. 

Haft er eftir varðstjóra lög­regl­unnar á Sel­fossi á mbl.is í morgun að það hafi verið stang­veiðimenn í Þing­valla­vatni sem hafi til­kynnt um skot­hvelli og að ungmennin virt­ust vera að leika sér að skjóta úr riffl­un­um við vatnið. Þegar lög­regl­an kom að Tóft­um þar sem ung­menn­in höfðu verið, voru þau far­in í burtu á bíl. Þau voru síðan hand­tek­in á Mos­fells­heiði á leið til Reykja­vík­ur.

Vopn­in eru í eigu föður eins þeirra og virðist sem þau hafi verið tek­in í leyf­is­leysi en unnið er að rann­sókn máls­ins. 

Mik­ill er­ill hef­ur verið und­an­far­inn sól­ar­hring hjá lög­regl­unni á Suður­landi og marg­ir tekn­ir fyr­ir akst­ur und­ir áhrif­um fíkni­efna, að sögn varðstjóra í lög­regl­unni á Sel­fossi.